Veitingastaður
Á Arnarstapa er mjög óvenjulegur og fallegur veitingastaður sem byggður er í stíl gömlu torfbæjana. Bærinn er með tvær burstir, reistur árið 1985 og tekur 55 manns í sæti. Í þessu þjóðlega og vinalega umhverfi bjóðast allar almennar veitingar í mat og drykk fyrir einstaklinga og hópa.
Nýmeti
Á Arnarstapa er stutt á fengsæl fiskimið og því leggja veitingamenn hjá Snjófell höfuðáherslu á að hafa ávallt á boðstólnum úrvals fiskmeti sem meðhöndlað er að hætti hússins. Auk þess er boðið upp á ýmsa grill- og kjötrétti.
"Frú Hnallþóra"
Á sunnudögum frá 17. júni til 1. september er hið sívinsæla, heimabakaða kaffihlaðborð "Frú Hnallþóra" á boðstólnum, en þar er um auðugan garð að gresja í lostæti sem kitlar bragðlaukana.