Snæfellsjökull
Snæfellsjökull Snæfellsjökull...
...gnæfir tignarlega yst á Snæfellsnesi, rétt ofan við Arnarstapa. Hann er 1446 m. hár og er einn þekktast jökull heims. Jökullinn býr yfir einstakri formfegurð og magnþrungnum krafti.

Fjöldi fólks um allan heim trúir að hann sé ein af sjö orkustöðvum jarðar. Hann hefur orðið hagyrðingum yrkisefni og skáldum innblástur við sköpun ómetanlegra bókmenntaverka. Saga franska rithöfundarins Jules Verne (Journey to the center of the earth) er heimsþekkt en þar lýsir hann göngu úr jöklinum inn til miðju jarðar.

Slepaferð Sleðaferðir
Ferðaþjónustan Snjófell hefur í ferðum á Snæfellsjökul tvo snjótroðara og fimm snjósleða. Hámarksflutningsgeta pr. ferð er því um 45 manns. Um 40 manns á troðara og 5 á sleða.

Ferðir á Snæfellsjökul á snjósleðum eða snjótroðara er ógleymanleg upplifun og sérlega ánægjuleg stund. Af jöklinum er stórbrotið útsýni sem gefur einstaka möguleika til myndatöku og veitir ógleymanlega upplifun.

Farið er í ferðir á jökulinn kl: 10:00, 12:00, 14:00, 16:00, 21:00 og 23:00. Þetta er margrómuð ferð á Snæfellsjökul sem tekur um 2 klst. Ferðir síðar á kvöldin og miðnæturferðir eru farnar eftir því sem eftirspurn kallar á.

Athugið að mikilvægt er að panta far í allar ferðir. Sjá einnig verðlista.

Tölvupóstur: snjofell@snjofell.is


Vefhönnun: Nepal hugbúnaður