Göngu- og hjólaferðir

Ströndin Gönguleiðir

A: Ströndin
Ströndin milli Arnarstapa og Hellna er stórskorinn klettaströnd. Stórkostlegt er að sjá hvernig náttúruöflin hafa mótað umhverfið í tímanna rás.

B: Laugarbrekka
Tilvalið er að ganga upp að fyrrum þingstað og að rústunum af gömlu Laugarbrekku, fæðingarstað Guðrúnar Þorbjarnardóttur. Á Laugarbrekkuholtinu er dys Axlar-Bjarnar og efst í holtinu er laug Bárðar Snæfellsáss.

Þar rétt fyrir vestan, er Laugarvatnið þar sem "sumir" sjá dansandi álfa og huldufólk. Þaðan er hægt að fylgja veginum til baka að Arnarstapa eða fara niður með Hellnahrauninu og að Maríulindinni og síðan þaðan eftir Miðgötunni gegnum hraunið (með rafmagslínunni) að Arnarstapa.

C: Stapafell / Sönghellir
Ganga má hringinn í kringum Stapafellið og koma við í Sönghelli einnig má ganga upp á Stapafellið sem er 526 metrar að hæð, en þaðan er afar víðsýnt yfir Breiðuvík og sögustaði undir Jökli.

D: Sölvahamar / Rauðfeldargjá
Fara má út á Sölvahamar og að Látri eða fara upp með Hnausahrauni og koma við í Rauðfeldsgjá og fylgja veginum aftur að Arnarstapa. Eftir Sölvahamri liggur gamla reiðgatan undir Jökli og henni má fylgja að Búðum.

E: Jökulganga
Ganga á Snæfellsjökul er hverjum manni ómótstæðileg ögrun. Öruggast er að fylgja slóðanum eftir sleðana.


Tölvupóstur: snjofell@snjofell.is


Vefhönnun: Nepal hugbúnaður